Þroskó

14.06.2008 16:26:47 / nemar

Til hamingju gömlu bekkjarfélagar!!!!


Til hamingju með að vera útskrifuð frá Kennaraháskólanum í dag :), vonandi eigið þið dásamlegan dag og kvöld og njótið þess il hins ítrasta. Mun sakna ykkar næsta vetur. Með kveðju frá Bandaríkjunum. Ykkar Vala (gamla bekkjarsystir)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 23:39:50 / nemar

Afmælisskvísa...

Til hamingju með afmælið þitt elsku Íris!!!
Kveðja, Jóhanna Lilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 00:00:53 / nemar

Sólliljan átti afmæli

Elsku Ásta innilega til hamingju með daginn vona að þú fyrirgefir hversu seint þetta er.
Vonandi áttir þú góðan dag með þér og þínum..
Þú ert flottust
KNússssssss


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 08:51:05 / Steinunn

Ný síða!

Tékkið á nýju síðunni okkar!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 13:48:03 / Sæja

Við erum þroskaþjálfar...og ætlum að þroska þig:)

Takk æðislega fyrir skemmtilegt gærkvöld. Held að það hafi tekist að hrista okkur öll saman, þó fyrr hefði verið.
Vil þakka Siggu sérstaklega fyrir að semja fallega texta fyrir nýju einkennislögin okkar. Hvet hana til að fara að taka þau upp og gefa út. Við getum þá kannski látið meira á okkur bera, allavega ef við fáum þau spiluð í útvarpinu;)

Mig langar bara að biðja þær/þá sem voru með myndavélar að setja myndirnar endilega einhversstaðar inn svo við getum dáðst af fegurð okkar þetta kvöld um ókomna tíð.

Gangi ykkur vel að undirbúa fyrirlestrana.

Sjáumst á mánudaginn.
Kv. Sæja

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 00:17:09 / nemar

Gleðilegt sumar mín kæru!!!

Þið misstuð af mjög skemmtilegu kúrekaballi í gær... þetta var alveg frábært kvöld! En þið eruð heppin því að í kvöld verður aftur fjör og þá gefst okkur tækifæri til þess að skemmta okkur vel saman!!! ;) Minni ykkir á að láta mig vita ef að þið komist ekki og það má alveg láta mig vita líka ef að þið komið... bara betra fyrir mig! Og ég minni á að leggja inn peninginn fyrir hádegi í dag/morgun, föstudag. Ég hlakka svo til að njóta þess að hafa gaman með ykkur og fjarnáminu svona áður en þessu námi lýkur... við gætum kannski verið dugleg að hittast svona eftir útskrift, ég hugsa nefnilega að ég muni sakna ykkar smá ;)
Jæja, sjáumst á morgun!
Knús Jóa


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 12:38:16 / Sæja

Enga afsökun núna!

Einhver ónefndur bekkjarfélagi var að óska eftir að við gerðum eitthvað saman áður er skólinn er búinn og fékk misjafnar undirtektir við því. Engin virðist vita hvað á að gera en ég er með hugmynd að einu, svona til að byrja með:haha:

Vorfagnaður, miðvikudaginn 23. apríl.
Slegið verður upp heljarinnar hlöðuballi í Fjöru á vegum Stúdentafélagsins. 
Þemað fyrir kvöldið er kántrý/villta vestrið.
Þetta er eiginlega síðasta tækifærið okkar til að sýna lit á uppákomu Stúdentafélagsins svo ég held það væri ekki úr vegi að við mættum og kættum. Tilvalið að fá sér smá bjór og slappa af í góðra vina hópi fyrir generalprufuna sem verður á föstudaginn.

http://www1.istockphoto.com/file_thumbview_approve/322187/2/istockphoto_322187_cowgirl_with_2_pistols.jpg


Enga afsökun núna. Nægur tími til að redda barnapíu, frí daginn eftir og ég veit ekki hvað og hvað.

Hver er til?;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 16:48:56 / nemar

langar engum að hittast eða allir búnir að fá nóg???

Sæl verið þið

Ég er orðin frekar leið á ekkert sé að gerast á þessari bloggsíðu, og kannski bara verið að gera mér grein fyrir því að skólanum er að ljúka og þá mun ekkert gerast hérna. Langaði bara að forvitnast hvort ekkert væri verið að plana neitt  í sambandi við útskrift eða fengu allir nóg af DK ferðinni. Eða hvort fólk ætlar út að borða eins og við höfum alltaf gerða eða bara sleppa þessu öll og hittast svo bara í vinnu einhver staðar á næstu árum.

En vona að öllu gangi vel að skrifa og klára það sem fólk er að vinna að.


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 18:45:16 / nemar

tveir góðir

Þið getið örugglega hlegið aðeins yfir þessum tveim

 Karlinn og sínöldrandi eiginkona hans, fóru í ferð til Jerusalem.
           Þar andaðist eiginkonan.  
 
           Útfararstjórinn bauð karlinum tvo kosti:  
           Það kostar 350.000 kr að senda hana heim og þá er athöfnin eftir,
           en við getum grafið hana hér í Landinu helga fyrir 10.000 kr.
           Karlinn velti þessu svolítið fyrir sér og sagðist svo vilja senda hana heim.
 
           Af hverju ættir þú að sóa 350 þúsundum til þess að senda konuna heim.
           Það væri bara indælt að henni væri búinn legstaður hér, auk þess sem
           það kostar ekki nema 10 þúsund krónur.
 
           Sá gamli svaraði:  
           "Fyrir löngu síðan lést hér maður, hann var grafinn hér,
           en á þriðja degi þá reis hann upp frá dauðum.  
           Ég get bara ekki tekið þá áhættu."

Annar góður
Ég held að eitthvað alvarlegt ami að mér," sagði Guðmundur við lækninn sinn.
"Annað eistað á mér er orðið blátt á litinn."
Læknirinn skoðaði Guðmund vandlega og komst að þeirri niðurstöðu að það yrði að fjarlægja eistað til að bjarga lífi hans.
Læknirinn var þó góða stund að sannfæra Guðmund um nauðsyn þess.

Tveimur vikum eftir aðgerðina kom Guðmundur aftur og sagði skelfdur við lækninn að nú væri hitt eistað orðið blátt.
"Við neyðumst til að nema það í burtu líka," sagði læknirinn alvarlegur á svip. "Annars geturðu dáið."

Tvær vikur liðu og enn var Guðmundur mættur til læknisins.
"Nú hlýtur eitthvað hryllilega alvarlegt að ama að mér því lillinn er orðinn kol blár á litinn," sagði Guðmundur á barmi taugaáfalls.
Læknirinn skoðaði hann vandlega og felldi síðan þann dóm að ef Guðmundur ætlaði að halda lífi yrði að skera vininn af.
"Hvernig fer ég að því að pissa ef þú skerð hann af," kveinaði Guðmundur. "Við setjum bara plastslöngu í staðinn," sagði læknirinn hughreystandi.
Síðan fór Guðmundur í aðgerðina og allt gekk vel.

Innan nokkurra vikna var hann þó, enn og aftur, mættur á skrifstofu læknisins. Nú var hann reiðilegur á svip.
"Læknir, plastslangan er orðin blá! Hvað er eiginlega í gangi?"
Læknirinn fórnaði höndum af undrun og tók til við að rannsaka Guðmund.
"Hmmmm," sagði hann eftir smástund.
"Getur verið að gallabuxurnar þínar láti svona mikinn lit?
"

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 09:28:45 / nemar

Hagkaupsgreiðsla


Hæ þið öll.

Þeir sem vilja fá Hagkaupspeninginn greiddan........:lol:... þurfa að senda mér reikningsnúmer og kennitölu svo ég geti millifært á ykkur.
vigdagna@khi.is   eða vigdisbjork@hotmail.com
Vona að ykkur gangi öllum vel að skrifa, þetta verður búið áður en við vitum af.  ;)

Kveðja, Vigdís

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 21:11:06 / nemar

Afmælisgellan Birna Babe

Til hamingju með daginn elsku rúsína...
Þú ert snilli..
Kveðja
Helga Lovísa



» 13 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 12:19:20 / Sæja

Mjög spennandi

Fötlun, sjálf og samfélag


Ráðstefna um fötlunarrannsóknir
Föstudag 18. apríl, kl. 8.30 – 17.00, Grand Hótel Reykjavík

Dagskrá

Fundarstjóri: Stefán Hreiðarsson forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins

08:30
Skráning

09:00 Setning:
Rannveig Traustadóttir formaður FuF
            Ávarp: Fulltrúi félagsmálaráðuneytisins. Lára Björnsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs 

09:15 Disability, identity and the management of normality
 (pdf, 46k) 
            Nick Watson, prófessor við University of Glasgow

10:15 Kaffi

10:30 Fötlun: Ímyndir og sjálfsskilningur í íslensku samfélagi

- Að losa sig við umskiptinginn: Fötlun í þjóðsögum og ævintýrum (pdf, 59k)  Ármann Jakobsson, lektor við Háskóla Íslands og Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor við Háskóla Íslands
- Birtingarmyndir fötlunar í bloggi og Barnalandi.is (pdf, 58k)  Kristín Björnsdóttir, doktorsnemandi við Háskóla Íslands
- “Undrabörnin” (pdf, 59k)  Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla Íslands
- Fátt er svo með öllu illt (pdf, 50k)  Þráinn Bertelsson
Umræður með fyrirlesurum í pallborði

12:15 Hádegishlé

Fundarstjóri:
Gerður A. Árnadóttir formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

13:15 Daglegt líf, sjálf og samfélag
- Sjálf, sögur og samfélag (pdf, 57k)  Guðrún V. Stefánsdóttir, lektor við Kennaraháskóla Íslands
- Hvað hjálpar að settu marki?. Í vinnu eða nám eftir veikindi eða slys (pdf, 60k)  Kristjana Fenger, lektor við Háskólann á Akureyri
- Fjölskyldan, sjálf og samfélag: Foreldrar fatlaðra barna og stuðningur samfélags (pdf, 61k)  Dóra S. Bjarnason, prófessor við Kennaraháskóla Íslands
- Að lifa lífinu! (pdf, 58k)  Hallgrímur Eymundsson, tölvunarfræðingur
Umræður með fyrirlesurum í pallborði

14.45 Kaffi

15:10 Mann-leiki, lýð-þátttaka, samfélags-ræði og fjölbreyti-réttindi
(pdf, 58k)
Héðinn Unnsteinsson


16:00 Aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir 
Dagskrá verður dreift í upphafi aðalfundar. 
Fundarstjóri: Guðmundur Magnússon formaður ferlinefndar Öryrkjabandalags Íslands

17:00 Ráðstefnulok

Ráðstefnugjald: Almennt ráðstefnugjald er kr. 5000. Nemendur og lífeyrisþegar greiða kr. 2000. Fólk sem situr ráðstefnuna hálfan dag greiðir hálft gjald. Ráðstefnugjald greiðist á ráðstefnustað.

Innifalið í rástefnugjaldi: Ráðstefnugögn, morgunkaffi og síðdegishressing.

Skráning  Síðasti skráningardagur er 15. apríl.

Nánari upplýsingar: Hanna Björg Sigurjónsdóttir (hbs@hi.is) og Hrefna K. Óskarsdóttir (hko@hi.is)

Táknmálstúlkun: Þeir sem þurfa á táknmálstúlkun vinsamlegast skrái sig viku fyrir þingið.


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 21:36:04 / nemar

Sæl mín kæru!

Mig langar svo að athuga hvort að það sé einhver sem gæti hugsað sér að passa litla fallega og fatlaða kisan minn þangað til í ágúst? Hann týndist en kom aftur til mín og er svo yndislegur kisi... hann bara getur ekki verið inni, hann þarf að komas út og ef að hann fær það þarf lítið sem ekkert að hafa fyrir honum. Ég ætla svo að kaupa mér íbúð í ágúst þar sem ég get haft hann og Rósu. Ég skal borga með honum og standa í ævilangri þakkarskuld við þann sem getur gert þetta fyrir mig. Mér þykir svo mikið vænt um þennan kött og hann er svo krúttlegur með hálfa rófu (hún datt víst af í slysi, þess vegna er hann fatlaður). 

Kær kveðja Jóhanna Lilja




» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 20:46:23 / nemar

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....

...hún á afmæli hún Hrafnhildur!!!!
Hún á afmæli í dag..
Jibbý!!:)

Til hamingju sæta :d


» 17 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 11:08:44 / Arna

Kynning

Hellúú

Þann 13. mars kl 14:00 verður kynning á tæknilegum hjálpartækjum í Hjálpartækjamiðstöðinni.

Ef 1hver hefur áhuga á að vera með endilega látið vita..

HrabbýSkvabbíí og Arna Stjarna:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 39
Orðabækur
�?tskriftin okkar!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1323 dögum
Útskriftin okkar!